4.2.2008 | 00:19
Hvorki vott né blautt !!
Eitt af því sem ég safna eru "gullkorn " sem menn láta frá sér fara í hita leiksins.
Hér koma nokkur dæmi.:
Lögregla hér í bæ sem þurfti að skamma háværan fanga sagði. "Þegi þú! Þú færð hvorki vott né blautt.
Sami maður sagði líka. "Segðu mér kennitölu þína steinþegjandi og hljóðlalaust !"
Þessi er lika ættuð frá honum. "Annað hvort kem ég sjáfur eða á bílnum.
Félaginn talaði líka um "Vöntun á hæfileikaleysisskorti !
Með þessu bloggi hef ég unnið veðmál, átti að skrifa 3 færslur. Búið og gert og get því hætt.
Vænti þess að fá vinning minn í fyrramálið, eða hvað Pétur ?
Um bloggið
Mér þykir
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Skemmtileg gullkorn. Á skemmtistað hafði maður nokkur verið til leiðinda. Kona sem rak staðinn, fékk nóg, vatt sér að manninum og sagði: "Ef þú ætlar að fá að vera hérna inni þá skaltu koma þér út."
Jens Guð, 4.2.2008 kl. 01:02
Góður Gunnar - ekki tel ég það öllu ólíklegt að umræddur lögreglumaður hafi eitt sinn leikið knattspyrnu með mér og fleirum!!...
Alltaf man ég þó eftir manninum sem fór á 22 á laugaveginum sem var rómaður hommastaður - hann fór vel í glasi og aldeilis ókynvilltur inn á staðinn, var þar með eitthvað bölvað vesen sem endaði með því að dyraverðirnir hentu honum "öfugum út".
Þorleifur Ágústsson, 4.2.2008 kl. 10:27
... Gunni... ég bað þig um að vera bloggvinur... á ekki að samþyggja mann!!!???
Brattur, 4.2.2008 kl. 21:36
Brattur vinur minn ég kann ekkert á þetta dæmi ! Þú ert 100% samþ. ef ég bara vissi hvernig ég ætti að gera þannig ?
Ég mun leita ráða hjá sérfræðingum og þá fara hlutir vonandi að gerast
Gunnar Níelsson, 4.2.2008 kl. 22:16
... þetta tókst Mr. Nelsson... mér finnst gaman að vera eini bloggvinurinn þinn, þarftu nokkuð fleiri!?... það er svo flott að vera einn á mynd á síðunni þinni...
Brattur, 4.2.2008 kl. 22:29
Takið eftir, takið eftir !! Lokað hefur verið fyrir skráningu á frekari bloggvinum á þessari síðu.
Brattur er vinur minn
Gunnar Níelsson, 4.2.2008 kl. 22:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.